Síðustu tvö árin hafa hringlaga borð verið að ryðja sér braut inn í borðstofurnar – en í ár virðist vera komið alveg nýtt trend.
Samkvæmt heimildum frá dönsku húsbúnaðarblöðunum eru felliborð í öllum stærðum að koma sterkt inn – eins ef marka má fréttir frá helstu og þekktustu vörumerkjunum og nýjungum á Instagram. Eitt það vinsælasta er vintage borð frá Børge Mogensens – gömul og falleg klassísk hönnun, þar sem tveir „fætur“ eru sveigjanlegir og hægt að færa fram og til baka. En þetta tiltekna borð er í dag framleitt af Fredericia Furniture.
Önnur vörumerki hafa verið að kynna sams konar borð á markað, en nútímaútgáfu af felliborðum má til dæmis finna frá Gubi, &Tradition og Brøste Copenhagen. Og það eru án efa fleiri borð væntanleg frá öðrum framleiðendum sem eiga eftir að skjóta sér fram á yfirborðið á komandi misserum.