Kakan var pappakassi

Þessi kaka er hreint út sagt ótrúleg! Það er varla …
Þessi kaka er hreint út sagt ótrúleg! Það er varla hægt að sjá munin á venjulegum kassa og þessari köku. Mbl.is/ Nina Evans Williams / SWNS.COM

Þessi til­tekni pappa­kassi átti eft­ir að vekja mikla lukku hjá af­mæl­is­barn­inu – enda ekki á hverj­um degi sem við sjá­um eitt­hvað í lík­ingu við þessa súkkulaðiköku.

Það var Kane Evans sem átti 24 ára af­mæli nú á dög­un­um og eng­in önn­ur en mamma hans, Nina Evans, sem bakaði þessa geggjuðu köku handa hon­um í til­efni dags­ins. Það tók Ninu um tvo daga að baka og skreyta kök­una sem hún hélt leyndu fyr­ir Kane. Á af­mæl­is­dag­inn sjálf­an náði hún að plata son sinn sem hélt að hans biði send­ing frá Amazon þegar hann sá pakk­ann liggja á eld­hús­borðinu – en Kane pant­ar mikið af alls kyns dóti og fær víst viku­lega send­ing­ar frá Amazon. Móður hans fannst því til­valið að kak­an yrði skreytt eins og pappa­kassi til að blekkja hann – sem tókst bet­ur en hana grunaði því hann trúði þessu ekki fyrr en hann skar í kök­una.

Afmælisbarnið Kane Evans, varð 24 ára nú á dögunum og …
Af­mæl­is­barnið Kane Evans, varð 24 ára nú á dög­un­um og fékk þessa geggjuðu köku frá mömmu sinni. Mbl.is/ Nina Evans Williams / SWNS.COM
Mbl.is/ Nina Evans Williams / SWNS.COM
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert