Haldið ykkur fast því við leyfum okkur að fullyrða að þetta séu bestu bollur sem bakaðar hafa verið. Það er engin önnur en María Gomez á Paz.is sem bakaði bollurnar fyrir Bolludagsbækling Hagkaups og hjálpi okkur allir heilagir.
Þetta er bolla fyrir metnaðarfulla og við skorum á ykkur að prófa!
Churros-bollur með sætum vanillurjóma og dulce de leche
Churros-deig
- 500 ml vatn
- 110 g smjör
- 2 msk. sykur
- ½ tsk. salt
- 280 g hveiti
- 2 stór egg
- 1 tsk. vanilluextract eða vanilludropar
- 1,5 lítrar grænmetisolía
Sykur til að velta upp úr:
- 1/2 bolli sykur
- 1 msk. kanill
Á milli
- 500 ml rjómi
- 1 tsk. flórsykur
- 1 tsk. vanilla extract eða vanilludropar
- 1 krukka af Dulce de Leche frá Stonewall Kitchen
Aðferð
- Byrjið á að hræra saman sykurinn og kanilinn sem á að fara utan á og setjið á matardisk og leggið til hliðar
- Nú byrjum við á sjálfu churrosinu
- Vatn, smjör og sykur er sett saman í pott og látið byrja að sjóða, lækkið þá hitann niður í miðlungshita
- Bætið svo hveitinu út í pottinn smátt og smátt og hrærið vel í á meðan þar til myndast eins og filma í botninn og deigið er orðin falleg kúla, mjög svipað og þegar maður gerir vatnsdeigsbollur
- Færið nú deigið yfir í skál og látið kólna í eins og 5-10 mínútur við opinn glugga
- Bætið svo vanillu og eggi við í skálina og byrjið strax að þeyta með handþeytara, þar til deigið er orðið silkimjúkt og vel þjappað saman í kúlu. Passið samt að gera ekki of lengi þá verður churrosið seigt
- Setjið deigið í sprautupoka með stjörnustút (best að setja smá af deigi í einu)
- Sprautið svo deigi á smjörpappa í hringi og klippið í kringum hvern hring svo hver og einn fái sinn pappa
- Hitið nú olíuna á djúpri pönnu og setjið smá deig út á til að vita hvort hún sé heit
- Setjið svo aðeins þrjá hringi í einu með smjörpappanum á út í olíuna og takið pappann með töng strax af, mjög þægilegt að gera þetta svona svo slettist ekki á mann olía
- Steikið þar til churrosið er orðið vel gullinbrúnt og passið að hafa þá nógu lengi í vel heitri olíu svo þeir verði ekki hráir að innan
- Setjið þá svo ofan á disk með eldhúspappír á til að taka af alla aukaolíu
- Að lokum er annarri hliðinni á churrosinu, sem snýr út, velt upp úr kanilsykursblöndunni og leyft að kólna
- Þeytið svo rjóma með flórsykri og vanilludropum
- Setjið svo dulce de leche á neðri helminginn á churros og þeyttan rjóma ofan á og lokið með öðrum helming af churros og látið kanilsykurshliðina snúa út