Hér er drykkur sem fullkomnar konudaginn, áramótin og alla daga þegar þig langar til að gera vel við þig. Hér er klassískur cosmopolitan að hætti Hildar Rutar, sem segir drykkinn renna ljúflega niður. Hún mælir með að skála í fallegum glösum, það geri stemninguna enn betri.
Bleikur helgarkokteill sem slær í gegn
- 3 cl Cointreau
- 4 cl vodki
- 4 cl trönuberjasafi
- 2 cl safi úr límónu
- 1 cl sykursíróp (má sleppa)
- klakar
Aðferð:
- Hristið allt vel saman í kokteilhristara með nóg af klaka.
- Hellið í gegnum sigti í fallegt glas.
Sykursíróp
Aðferð:
- Blandið saman vatni og sykri í pott.
- Bræðið sykurinn á vægum hita og hrærið þar til hann leysist upp. Kælið. Tekur nokkrar mínútur.
- Ég helli sykursírópinu í flösku með tappa og geymi í ísskáp. Það geymist í um mánuð.
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir