Fyrrverandi forsetafrúin Michelle Obama hefur fengið nýtt hlutverk sem þáttastjórnandi í matreiðsluþáttum á Netflix – og meðstjórnendurnir eru frekar skrautlegir.
Frú Obama er ekki bara með sinn eigin þátt heldur stjórnar hún þættinum með tveimur dúkkum sem kallast Waffles og Mochi – ásamt fljúgandi innkaupakerru. Já, nú eru eflaust einhverjir lesendur undrandi, en til að útskýra frekar þá eru þættirnir tileinkaðir börnum. Þættirnir gerast í matvöruverslun þar sem verslunareigandinn, Michelle Obama, hjálpar dúkkunum að verða betri kokkar. Dúkkurnar ferðast um heiminn og heimsækja veitingahús og býli, til að læra um hráefni hvaðanæva úr heiminum – og ýmsir þjóðþekktir gestir líta inn. Þema þáttanna er í anda „Let's Move“-áætlunarinnar sem Obama stendur fyrir og miðar að því að berjast gegn vaxandi offituvanda á meðal barna og unglinga í Bandaríkjunum.