Sjúklega sætir matardiskar

Krúttlegir matardiskar í laginu eins og pera og epli - …
Krúttlegir matardiskar í laginu eins og pera og epli - og koma úr vinnustofu hjá listakonu í London. Mbl.is/ elisa_ceramics

Við erum sannfærð um það að falleg matarstell auki matarlystina – sérstaklega þegar diskarnir eru í laginu eins og matvara.

Elísa er ítalskur keramíker sem hefur síðan 2013 verið búsett í London, þar sem hún starfar við það sem hún elskar allra mest – að hanna listrænar vörur til heimilisins. Hún er skapandi að eðlisfari með mikla ástríðu fyrir handverki, þá sérstaklega leirmunum. En hún sinnir keramíkinni daglega á vinnustofu sinni í hjarta London.

Vörurnar hennar Elísu eru allar einstakar, þar sem hver og ein er handunnin af mikilli umhyggju og athygli – því er hvert verk fullkomlega ófullkomið, og ekkert eins og annað. Á instagramsíðu hennar má finna diska formaða sem epli, fiska og perur. Eins er bollar, skálar, blómavasar og skemmtilega skrautlegar skeiðar með texta þar að finna. Við leyfum myndum að njóta sín hér fyrir neðan, en síðuna hennar Elísu má skoða nánar HÉR.

Allt svo fullkomlega ófullkomið.
Allt svo fullkomlega ófullkomið. Mbl.is/ elisa_ceramics
Akkúrat skeiðarnar sem við viljum sjá í skúffunum okkar.
Akkúrat skeiðarnar sem við viljum sjá í skúffunum okkar. Mbl.is/ elisa_ceramics
Einmitt það sem við vildum segja!
Einmitt það sem við vildum segja! Mbl.is/ elisa_ceramics
Sjúklega sætir sushi diskar.
Sjúklega sætir sushi diskar. Mbl.is/ elisa_ceramics
Maður verður bara að passa sig að borða ekkert með …
Maður verður bara að passa sig að borða ekkert með sósu á þessum diskum - annars mjög flottir. Mbl.is/ elisa_ceramics
Mbl.is/ elisa_ceramics
Elísa er ítalskur keramíker sem býr í London og rekur …
Elísa er ítalskur keramíker sem býr í London og rekur þar vinnustofu. Mbl.is/ elisa_ceramics
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert