Ef það er eitthvað sem foreldrum hefur lærst þá er það áhrifamáttur tiktok og hér erum við með uppskrift sem hefur hreinlega verið kölluð tiktok-pastað.
Uppskriftin er frekar einföld en hér leika ostur og tómatar aðalhlutverkin. Hérna er okkar útfærsla þar sem Ostakubbur frá Gott í matinn fær að njóta sín í allri sinni dýrð.
Tiktok-pasta
Fyrir fjóra
- 1 stk. Ostakubbur frá Gott í matinn
- 500 g kirsuberjatómatar
- 3 stk. hvítlauksrif
- 1⁄2 tsk. chiliflögur (magn eftir smekk)
- 1 tsk. þurrkað óreganó
- smá sjávarsalt
- 1⁄2 dl ólífuolía
- 500 g þurrkað pasta að eigin vali
- væn handfylli fersk basilíka
Aðferð:
- Hitið ofn í 180 gráður með blæstri.
- Setjið ostakubbinn í eldfast mót og hellið heilum kirsuberjatómötum í kringum ostinn.
- Sneiðið hvítlauksrifin í þunnar sneiðar og dreifið yfir ásamt chiliflögum, óreganó og smá salti.
- Hellið ólífuolíu yfir allt og blandið aðeins saman. Hafið ostinn í miðjunni
- Bakið í 25 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður og tómatarnir mjúkir.
- Sjóðið pastað samkvæmt leiðbeiningum á pakka á meðan osturinn og tómatarnir bakast.
- Sigtið pastað og hellið því heitu yfir ostinn og tómatana og blandið vel saman.
- Toppið með rifinni ferskri basilíku, smakkið til með salti eftir smekk og berið fram.
Höfundur: Helena Gunnarsdóttir