Það verður að viðurkennast að þessi grjónagrautur er með þeim girnilegri sem sést hafa og ekki spillir fyrir að hann inniheldur afar lítið af kolvetnum.
Það er Hanna Þóra sem á heiðurinn af uppskriftinni en hún er flinkari en flestir í ketófræðum og því getum við gulltryggt þessa uppskrift. Að auki tekur mjög stutta stund að búa grautinn til sem er alltaf bónus!
Ketógrjónagrautur
Grautur – magn fyrir 2-3
- 1 pakki BareNaked konjac-grjón
- 3 msk. chiafræ
- 3 dl. rjómi
- 1 tsk. salt (má vera meira)
- 2 tsk. vanilludropar
- 2 tsk. ketóvæn sæta t.d. ethrytol/stevía
Hugmyndir að toppi
- Kanill
- Strásæta
- Sykurlaus sulta
- Möndluflögur
Aðferð:
- Setjið 2 dl af rjóma í miðlungsstóran pott og bætið chiafræjum, salti, vanilludropum og sætu út í.
- Skolið Barenaked-hrísgrjónin undir köldu vatni og setjið út í pottinn þegar rjóminn er orðinn vel þykkur.
- Hrærið saman í tvær mínútur og berið svo fram með kanil, uppáhaldsberjunum eða góðri sultu.
- Grjónin sjálf draga mjög lítið af vökva í sig og því er mikilvægt að leyfa rjómablöndunni með chiafræjunum að vera undirstaðan og bæta grjónunum út í upp á fyllingu.