Það er fátt sem gleður okkur meira en freistingar í eldhúsið – en þess má geta að nýjar vörur voru að lenda frá IHANNA HOME.
IHANNA HOME er íslenskt hönnunarfyrirtæki sem margir þekkja enda einna þekktast fyrir Krumma-herðatréð sem kom fyrst á markað árið 2008. Síðan þá er mikið vatn runnið til sjávar þar sem fyrirtækið hannar og framleiðir hágæðahönnunarvörur með grafísku ívafi. Markmið þeirra er að bjóða upp á vörur þar sem einfaldleiki, gæði og notagildi fara saman – sem tekst svo sannarlega vel. Í vörulínum IHANNA HOME má meðal annars finna mjúk sængurver, skrautlega púða, hlýleg ullarteppi, skrautmuni og ýmsar vörur í eldhúsið.
Nýju eldhúsvörurnar eru innblásnar af hrjóstrugu landslagi Íslands, melum og mosa. Þar er horft á fegurðina í munstrunum sem myndast með steinum og í sandinum, ásamt fallegum litum í smágerðum og harðgerðum plöntum sem þrífast með mosanum. Hér er svunta úr endingargóðri og þykkri bómull og leðri, eins er dúkur úr bómull/hör, viskastykki í tveimur litum og ofnhanski einangraður með polywadding, eins með leðurlykkju til að hengja upp. Nýju vörurnar eru fáanlegar hjá ýmsum söluaðilum hér á landi sem erlendis, en eins má skoða þær nánar á heimasíðunni HÉR.