Alvöru belgískar vöfflur - gauffres

Ljósmynd/María Gomez

Það eru margir sem vita ekki að alvöru belgískar vöfflur eða gauffres eins og það er kallað eru ekki gerðar úr hefðbundnu vöffludeigi eins og við þekkjum það. Í alvöru gauffres er notað gerdeig með perlusykri sem bráðnar svo í deigið og gerir eins og sæta húð á vöfflurnar sem gerir þær stökkar.

María Gomez er hér með uppskrift að fullkomnum gauffres en það eru fáir sem standast henni snúning í eldhúsinu. Hún segir alvöru belgískar vöfflur vera mun þyngri í sér en vöfflur úr hefðbundnu íslensku vöffludegi sem sé bakað í belgísku vöfflujárni. Þær séu líka aðeins harðari undir tönn og harðni þegar þær kólni ólíkt því sem við erum vön.

„Það er langbest að neyta þeirra beint úr vöfflujárninu en ekki láta þær standa mikið áður. Svo er hægt að taka afgangsvöfflur og hita í 40 sekúndur í örbylgju til að mýkja þær upp aftur og fá eins og nýjar,“ segir María og bætir við að það geti verið nokkuð snúið að fá perlusykur hér á landi.

„Ég fann þennan í Fjarðarkaupum og hann heitir svensk pärlsocker og er svona hvítar perlur eins og er stundum notað á kanilsnúða. Ef þið finnið hvergi perlusykur má nota grófan hrásykur í staðinn, í aðeins minna magni, en ég gef það upp sem valkost í hráefnislistanum.

Mér finnst langbest að bera þær fram með upphituðu súkkulaðismjöri eins og Nutella eða öðru sem ykkur finnst best og þeyttum rjóma. Ef þið eruð vön að nota hefðbundið vöffludeig munuð þið taka eftir að þessar eru meira eins og sætt brauð eða stökkar að utan og mjúkar innan í.

Alvöru belgískar vöfflur

500 g hveiti

½ tsk. fínt borðsalt

1 tsk. sykur

10 g pressuger eða 1 tsk þurrger (mér finnst pressuger betra)

2 dl ylvolg nýmjólk

225 g mjúkt smjör skorið í teninga

2 egg

1 tsk. vanilludropar

150 g perlusykur eða 110 g grófur hrásykur (verður að vera grófur eins og t.d frá Dansukker og fæst í Bónus, notið samt bara ef þið finnið ekki perlusykur)

Setjið hveiti og salt saman í hrærivélarskál og blandið létt með króknum

Setjið svo ylvolga mjólk, ger og 1 tsk sykur saman í aðra skál og látið standa í eins og fimm mínútur.

Bætið svo eggjum og vanilludropum saman við germjólkina og hrærið vel saman með písk eða gaffli

Kveikið svo á hrærivélinni og hellið gerblöndunni út í hveitið meðan það hnoðast.

Setjið svo smjörið í teningum smátt og smátt saman við deigið og hnoðið þar til allt er vel hnoðað saman (athugið að deigið er frekar klístrað og blautt og þannig á það að vera, ekki bæta við það hveiti).

Látið deigið hefast í 30 mínútur í skálinni undir stykki.

Þegar deigið hefur hefast er perlusykurinn eða hrásykurinn, hvort sem þið notið, settur saman við og hnoðað í örlitla stund (ég gerði það bara með höndunum ofan í skálinni).

Deigið á að duga í 8-10 vöfflur svo takið eins og kúlu á stærð við litla brauðbollu og setjið hana á járnið og bakið.

Þetta deig er lengur að bakast en venjulegar vöfflur en þær eiga að vera fallega gylltar að lit.

Berið fram með öllu því sem ykkur dettur í hug en með upphituðu súkkulaðismjöri og þeyttum rjóma er laaaangbest.

Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert