Það jafnast fátt á við hrein rúmföt og góðan nætursvefn. En hvernig hljómar að sofna uppi í rúmi sem ilmar dásamlega? Hér er trixið sem þú munt alltaf vilja nota á rúmdýnuna þína eftir þetta.
Svona færðu rúmdýnuna til að ilma - skref fyrir skref
- Byrjið á því að taka allt af rúminu og ryksugið dýnuna.
- Blandið saman ilmolíu og matarsóda, en passið að blandan sé alltaf þurr og verði ekki klesst.
- Dreifið blöndunni yfir rúmdýnuna og látið standa í nokkra klukkutíma.
- Ryksugið aftur dýnuna og setjið hreint lak á.
- Góða nótt!