Hér erum við komin með kjúklingarétt sem Albert Eiríksson segir að sé „alveg sjúklega góður" og ef Albert segir það þá er það rétt.
Að auki er hann fljótlegur og ætti að falla flestum í geð!
Kjúklingur í mangósósu
Smyrjið eldfast mót með ólífuolíu. Raðið kjúklingabitum eða -bringum í fatið og kreistið sítrónusafa yfir. Kryddið með salti og pipar.
Hrærið saman rjóma og mangó chutney og dreifið yfir kjúllann.
Eldið við 175°C í 30-35 mín. eða þangað til kjötið er gegnumsteikt.
Berið fram með kínóa eða hrísgrjónum, ásamt grænmeti eða salati.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl