Margir halda í hefðina og útfæra gúrme páskabröns fyrir sína nánustu, og hér er uppskrift sem á svo sannarlega heima á slíku veisluborði. Eggjabitar sem munu slá í gegn og tekur enga stund að útfæra.
Girnileg mímósa-egg í páskabrönsinn (fyrir 6)
- 6 egg
- 1 msk. gróft sinnep
- 3 msk. mayones
- Ferskt dill
- ½ sítróna
- Salt og pipar
- 24 rækjur
- Púrrlaukur
- Rúgbrauð ef vill
Aðferð:
- Sjóðið eggin í 8-9 mínútur þar til harðsoðin. Kælið í köldu vatni og takið skurnina utan af eggjunum.
- Skerið eggin til helminga, takið rauðuna úr og setjið í skál. Leggið eggin (hvítuna) á bakka.
- Hrærið sinnepi og majónesi saman við eggjarauðurnar. Saxið dill niður sem samsvarar 3 msk. og setjið út í sinnepsblönduna – og maukið saman með gaffli. Smakkið til með salti og pipar.
- Setjið blönduna aftur í eggjahvíturnar.
- Toppið með rækjum og söxuðum púrrlauk, og kryddið með pipar og flögusalti.
- Berið ef til vill fram með rúgbrauði.
Uppskrift: Voresmad.dk