„Jesús minn guð og almáttugur hvað þessar tvær pítsur voru góðar," segir María Gomez á Paz.is um þessar pítsur. „Hver myndi trúa því að það væri hægt að gera gourmet-pítsur á aðeins 10 mínútum?“
Hér notar María frosna pítsubotna frá Hattings sem hún segist hissa á að hafi ekki komið á markað fyrr – svo sniðugir séu þeir.
„Ég ákvað að gera örðuvísi pítsur og vá hvað þær voru báðar góðar. Þessi hér fyrir ofan er tilvalin kvöldmatar-gourmet-pítsa með roast beef og béarnaise sem var hreint ótrúleg. Seinni pítsan er hin fullkomna morgunverðarpítsa sem seint verður toppuð.“
Gourmet-pítsur með roast beef og béarnaise eða eggi og beikoni á örfáum mínútum
Roast beef-béarnaise-pítsa
- 1/2 dl olífuolía
- 1 geiralaus hvítlaukur eða 3-4 hvítlauksrif
- 1/2 tsk gróft salt
- 200 gr tilbúið roast beef (til sem skorið álegg í öllum verslunum)
- tilbúin béarnaisesósa (ég kaupi 225 ml dollu frá Nonna litla í Bónus, finnst hún rosa góð)
- 1 poki rifinn mozzarellaostur
- 1 pakki frosnir Hatting-pítsubotnar
Morgunverðar-brunch-pítsa
- Tómatsósa (þá meina ég ekki pítsusósa heldur ketchup eins og á pylsur)
- brauðostur, má vera gouda, skólaostur eða annar
- 1 poki mozzarellaostur rifinn
- 4 egg
- 1 bréf beikon
- salt og pipar
- 1 pakki frosnir Hatting-pítsubotnar
Aðferð
Roast beef-béarnaise-pítsa
- Hitið ofn á 220°C blástur
- Setjið ólífuolíu í skál og merjið hvítlaukinn út í og saltið
- Penslið svo pítsubotnana með olíunni og leyfið mörðum hvítlauk að vera með
- Stráið svo rifnum mozzarella yfir
- Setjið svo eins og 50 g af tilbúnu roast beef á hverja pítsu ofan á ostinn
- Bakið í 10 mínútur
- Setjið svo að lokum vel af béarnaise ofan á pítsuna um leið og hún kemur úr ofninum og hafið meira með til hliðar
Morgunverðar-brunch-pítsa
- Hitið ofn á 220°C blástur
- Setjið tómatsósu á botninn eins og ef þið væruð að setja pítsusósu
- Þekið botninn með brauðostssneiðum
- Setjið svo rifinn mozzarella í hring í kringum kantana eins og þið sjáið á myndum fyrir ofan svo það komi hola í miðjuna
- Brjótið svo egg í bolla og setjið ofurvarlega inn í holuna
- Saltið eggið og piprið
- Raðið beikonsneiðum í kringum eggið ofan á mozzarellaostinn
- Bakið í 13-14 mínútur eða þar til eggið er til ofan á