Jógúrtkaka á hvolfi með karamellutoppi

Ljósmynd/Gunnar Sverris

Það er engin önnur en Halla Bára Gestsdóttir á Home & Delicious sem á þessa köku.

„Þessi kaka er alls ekki flókin þótt fyrirsögnin hljómi kannski smá þannig. Ég setti þessa uppskrift saman úr ýmsu sem mér þykir gott og eftir að hafa fengið góða massarínuköku í bakaríi sem mig langaði að prófa að útfæra.“

Jógúrtkaka á hvolfi með karamellutoppi

Karamella

  • 120 g sykur
  • 2 msk. bökunarsíróp
  • 250 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 1⁄2 tsk. salt
  • 30 g smjör
  • 2 dl ristaðar möndluflögur

Botn

  • 1 dl sykur
  • 75 g mjúkt smjör
  • 2 stk. egg
  • 2 1⁄2 dl hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • smá salt
  • 2 msk. grísk jógúrt frá Gott í matinn
  • 1 dl mjólk

Aðferð:

  1. Setjið allt hráefnið í pott á meðalhita.
  2. Hrærið vel og látið suðuna koma upp.
  3. Lækkið þá hitann og látið karamelluna malla í potti á vægum hita þar til hún fer að þykkna, en það tekur um 10-15 mínútur.
  4. Gætið vel að því að karamellan brenni ekki, sem gerist ef hitinn á hellunni er of hár.
  5. Slökkvið undir karamellunni og látið hana kólna örlítið og taka sig.
  6. Ristið möndluflögur á þurri pönnu eða notið tilbúnar. Ef þið eruð að rista þær, setjið þær á þurra og kalda pönnuna sem er á meðalhita. Hrærið reglulega og rólega í flögunum þar til þær fá á sig gullinn tón.
  7. Notið meðalstórt hringform, springform, og klæðið það með bökunarpappír.
  8. Stráið möndluflögunum í botninn, dreifið jafnt úr þeim.
  9. Hellið heitri karamellunni yfir og látið kólna nokkuð vel.
  10. Þá er komið að botninum sjálfum.
  11. Hitið ofn í 180 gráður.
  12. Hrærið saman sykur, smjör og egg og blandið vel.
  13. Hrærið þurrefnin saman í skál og hellið þeim saman við smjörblönduna og blandið aðeins saman.
  14. Setjið jógúrt saman við og mjólk og hrærið varlega til að byrja með.
  15. Athugið að hræra deigið ekki mikið því þá verður kakan gjarnan þétt og seig í áferð.
  16. Hellið deiginu yfir karamelluna í bökunarforminu.
  17. Setjið í heitan ofninn og bakið í 20-25 mínútur, athugið að bökunartíminn fer allt eftir því hve formið er stórt og kakan þykk.
  18. Stingið prjóni í kökuna eftir 15 mínútur, prjónninn á ekki að koma hreinn út heldur aðeins kámugur og blautur því kakan á ekki að vera mikið bökuð.
  19. Látið kökuna kólna nokkuð vel í forminu og á hvolfi.
  20. Hún skal vera volg þegar þið takið hana úr forminu, losið pappírinn og skellið henni á disk með karamelluhliðina upp.
  21. Kakan er góð volg sem köld, með ískaldri mjólk, kaffi og tei og hún er falleg sem eftirréttur með freyðivíni.
  22. Þeyttur rjómi eða grísk jógúrt má fylgja með í skál fyrir þá sem það vilja.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Ljósmynd/Gunnar Sverris
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert