Hér bjóðum við upp á drykk sem þótti vinsæll á amerískum ísbörum á sjötta áratugnum – þegar rjómi og kirsuber voru ómissandi par. Þessi frískandi sixtís sæla mun slá í gegn hjá öllum í fjölskyldunni.
Frískandi „sixtís“ sæla
- Sódavatn
- Ávaxtasíróp (t.d. jarðarberja-, hindberja- eða rabarbarasíróp)
- Rjómi
- Kirsuber
- Ísmolar
Aðferð:
- Fyllið glas að hálfu með ísmolum.
- Fyllið upp í ¾ af glasinu með sódavatni.
- Hellið sírópi í drykkinn eftir smekk.
- Setjið varlega tvær matskeiðar af þeyttum rjóma á toppinn.
- Skreytið með meiri rjóma og kirsuberi.