Það er ákveðin stemning í því að borða bruschettur, fingramat sem öllum finnst góður. Hér er hugmynd að bakka frá Hildi Rut sem er vægast sagt girnilegur.
Girnilegur bruschettu-bakki frá Hildi Rut
- 1-2 bruschettubrauð (ég keypti súrdeigs)
- ½ dl ólífuolía
- 2 hvítlauksrif, rifin eða pressuð
- 125 g hreinn fetaostur
- 100 g rjómaostur (ég nota Philadelphia)
- 2 msk. hunang
- 1 msk. pistasíuhnetur (má sleppa eða nota annað)
- ½ tsk. sesamfræ (má sleppa eða nota annað)
- 200-250 g kokteiltómatar
- 120-180 g ferskur mozzarella
- 2 msk. fersk basilíka
- 1 msk. ólífuolía
- salt og pipar
- hráskinka og salami eftir smekk
- jarðarber
- fíkjur
Aðferð:
- Byrjið á því að hræra saman fetaost, rjómaost og hunang með töfrasprota eða í matvinnsluvél þar til blandan verður mjúk. Setjið blönduna í litla skál og dreifið smátt söxuðum pistasíuhnetum og sesamfræjum (eða notið aðrar hnetur og fræ í staðinn).
- Skerið tómata, mozzarella og basilíku smátt. Blandið öllu vel saman í skál og hrærið saman við ólífuolíu, salti og pipar.
- Skerið jarðarber og fíkjur í bita.
- Blandið saman ½ dl ólífuolíu og hvítlauksrifi í skál.
- Skerið baguette í sneiðar. Dreifið sneiðunum á bökunarpappír eða bakka og penslið báðar hliðar með hvítlauksolíunni.
- Steikið brauðið á grillpönnu eða á grilli þar til það verður stökkt og gott.
- Raðið öllu fallega á bakka og njótið vel!
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir