Hér er á ferðinni æðislegur fiskréttur sem tekur enga stund að reiða fram og smakkast upp á tíu. Bleikja með stöppuðum fetaosti, hunangi og pistasíuhnetum – borin fram með grænmeti, kartöflum og kaldri sósu. Þessi réttur er ekki bara hollur, heldur líka ómótstæðilega góður og kemur úr smiðju Hildar Rutar.
Dýrindis fiskréttur á núll-einni (fyrir 2-3)
- 500 g bleikja
- ólífuolía
- salt & pipar
- 100 g hreinn fetaostur
- 1-2 msk hunang
- 70 g pistasíur
Aðferð:
- Skerið pistasíur smátt og stappið fetaostinn.
- Leggið bleikjuna á bökunarplötu þakta bökunarpappír.
- Dreifið ólífuolíu yfir og saltið og piprið eftir smekk.
- Dreifið fetaosti yfir bleikjuna ásamt hunangi og pistasíum.
- Bakið í 15 mínútur við 200°C eða þar til bleikjan er fullelduð. Njótið með góðu meðlæti.
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir