Hver kannast ekki við að brjóta saman sokka og þeir fljóta misjafnlega um í skúffunum? Við elskum öll húsráð sem hjálpa okkur að spara pláss og tíma – og þetta er eitt af þeim.
Kona nokkur á TikTok, Carolina Mccauley, er með 1,2 milljónir fylgjenda en hún deilir húsráðum sem aldrei fyrr við góðar undirtektir. Hér sýnir hún okkur hvernig best sé að brjóta saman sokka til að minnka plássið í skúffunum fyrir utan hversu snyrtilega þær munu líta út. Hún byrjar á að leggja sokkaparið saman og rúllar því svo upp og heldur því saman með því að leggja annað sokkaopið yfir parið (myndbandið hér fyrir neðan útskýrir þetta enn frekar). En þetta erum við svo sannarlega að fara að prófa.
@carolina.mccauley ✨ How to fold socks 🧦 ##foldingtips ##tidytok ##declutter ##foldingsocks ##folding101
♬ original sound - emileeflood
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl