Spegill er ómissandi inn á baðherbergi, en speglar geta verið eins mismunandi og við erum mörg. Hér eru nokkrir smart speglar sem geta jafnvel flíkkað upp á gamalt og þreytt baðrými. Því spegill þjónar ekki bara hagnýtum tilgangi – þeir setja klárlega tóninn fyrir stemninguna í rýminu.
Æðislegur spegill frá Eva Solo – hér með leðuról sem notuð er til að hengja spegilinn upp með.
Mbl.is/Eva Solo
Látlaus en fágaður spegill frá MENU – kemur með svörtum eða hvítum ramma.
Mbl.is/MENU
Gólfspegill frá House Doctor – búinn til úr endurunnum viði, því enginn spegill alveg eins.
Mbl.is/House Doctor
Öðruvísi en smart spegill frá Ferm Living – ílangur með bogadregnar línur.
Mbl.is/Ferm Living
Það eru Gejst sem eiga heiðurinn að þessum hringlaga spegli hér og er hannaður af Michael Rem.
Mbl.is/Gejst
Spegill frá Normann Copenhagen sem þú getur tekið með þér. Hægt er að snúa speglinum á alla kanta og eins má nota bakkann undir skartgripi eða annað sem til fellur.
Mbl.is/Normann Copenhagen