„Ostakökur eru eitthvað sem ég fæ aldrei nóg af!“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is og við tökum heilshugar undir það. „Þær passa svo fullkomlega sem eftirréttur, hluti af veisluborði eða bara með sunnudagskaffinu. Hér er á ferðinni einföld og ljúffeng vanillu ostakaka með Rolo súkkulaðibitum.“
Rolo ostakaka
Botn
- 1 pakki Homeblest kex
- 60 g brætt smjör
Aðferð:
- Finnið til um 22 cm breitt smelluform, setjið bökunarpappír í botninn og spreyið botn og hliðar með matarolíuspreyi.
- Brytjið kexið niður í minni hluta og tætið niður í duftkennt form í blandara eða matvinnsluvél.
- Setjið kexduftið í skál og hrærið bræddu smjörinu saman við.
- Hellið blöndunni næst í kökuformið, þjappið því niður í botninn og aðeins upp kantana, kælið á meðan fyllingin er útbúin.
Fylling og skreyting
- 4 gelatínblöð
- 50 ml sjóðandi vatn
- 600 g rjómaostur við stofuhita
- 150 g sykur
- 120 g flórsykur
- Fræ úr einni vanillustöng
- 300 ml þeyttur rjómi
- 4 rúllur af Rolo (4 x 41,6 g)
Aðferð:
- Leggið gelatínblöðin í bleyti í kalt vatn í um 10 mínútur.
- Sjóðið þá 50 ml af vatni og bætið gelatínblöðunum saman við, einu í einu, hrærið í á milli og takið af hellunni og hellið í skál/ílát þegar gelatínið er uppleyst. Leyfið á ná stofuhita á meðan annað er undirbúið.
- Þeytið saman rjómaost, sykur, flórsykur og fræ úr vanillustöng þar til létt blanda myndast, skafið nokkrum sinnum niður á milli.
- Hellið gelatínblöndunni (við stofuhita) saman við í mjórri bunu og hrærið saman allan tímann.
- Næst má blanda þeytta rjómanum varlega saman við með sleif.
- Að lokum má skera Rolo niður í minni bita og blanda saman við ostakökublönduna, síðan hella í smelluformið og kæla í að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.
- Fallegt er að skreyta kökuna með ferskum blómum eða öðru sem ykkur dettur í hug.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir