Saltristaðar og sætar hnetur er ómissandi að eiga við höndina þegar okkur langar í eitthvað til að maula, og þá án þess að taka dýfu ofan í snakkpokann. Hér er uppskrift sem inniheldur hnetur og möndlur og við mælum heilshugar með.
Snakkið sem gott er að eiga (fyrir 6-8)
- 2 dl vatn
- 75 g salt
- 200 g heilar möndlur, kasjúhnetur, pekanhnetur og heslihnetur
- 2 msk. síróp
- chili á hnífsoddi
Aðferð:
- Sjóðið vatn með salti þar til saltið hefur leyst upp. Bætið þá möndlum og hnetum út í pottinn.
- Látið sjóða í 10 mínútur og sigtið þá vatnið frá. Leggið á bökunarplötu.
- Bakið í ofni við 125°C þar til alveg þurrar og hafa fengið þunna gráleita salthimnu á sig.
- Hitið sírópið á pönnu og bætið chili á pönnuna – veltið hnetum og möndlum saman við blönduna.
- Dreifið úr á bökunarpappír og látið kólna. Geymist í lofttæmdu íláti.