Gagnrýndi uppskrift Gordon Ramsay

Gordon Ramsay
Gordon Ramsay

Það er fátt skemmtilegra en að hlusta á Gordon Ramsay níða skóna af áhugakokkum um heim allan fyrir glórulausar tilraunir sínar til að elda mat á nýstárlegan hátt. 

En hver hefði trúað því að þetta myndi koma fyrir Ramsay sjálfan? Aron Sanchez er matreiðslumaður sem tók Ramsay og hraunaði yfir tilburði hans við að búa til avókadórist.

Sagði hann í stuttu máli að Ramsay væri í ruglinu en sagði það afar fallega... sem er kannski eitthvað sem Ramsay ætti að taka sér til fyrirmyndar. Eða kannski ekki. 

Það skal tekið fram að þeir Sanchez og Ramsay eru góðir félagar og við búumst ekki við öðru en að Sanchez jafni sig. 

@chefaaronsanchez

##duet with @gordonramsayofficial hermano, I’m concerned… 🥑 ##react ##gordonramsay ##masterchef

♬ Spanish Toast - Gordon Ramsay



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert