Hann er einfaldur, fram úr hófi bragðgóður, ilmar einstaklega vel og kemur öllum í betra skap. Hér er undurfagur pastaréttur úr smiðju Höllu Báru Gestsdóttur sem ætti engan að svíkja.
Sítrónupasta með rjómaosti
Fyrir fjóra
- 500 g tagliatelle
- 500 ml rjómi frá Gott í matinn
- 3 msk. ferskur sítrónusafi
- 2 msk. sítrónubörkur, fínt rifinn
- 100 g hreinn rjómaostur frá MS
- 3 msk. parmesanostur eða Goðdala-Feykir
- salt og svartur pipar
Aðferð:
- Sjóðið pasta skv. leiðbeiningum á pakka.
- Hellið rjóma á pönnu, setjið sítrónusafa og sítrónubörk saman við. Hafið vægan hita undir pönnunni og komið upp suðu.
- Látið malla á meðalhita í fimm mínútur. Setjið rjómaost saman við og látið hann bráðna.
- Stráið parmesanosti eða Feyki yfir og hrærið.
- Smakkið til með salti og pipar.
- Hellið af pastanu en alls ekki láta það þorna í sigtinu.
- Setjið það strax á pönnuna með sósunni og blandið saman.
- Berið fram og stráið smá parmesanosti eða Feyki yfir.