Hér er á ferðinni eftirréttur sem hleypir vatni í munninn! Þessi ljúffengi og sumarlegi réttur kemur úr smiðju Hildar Rutar sem segir sniðugt að útbúa haframulninginn með fyrirvara og þá sé þægilegt að taka hann með í ferðalögin.
Eftirrétturinn sem sumarið á ekki séns í
Mæli með ½ - 1 nektarínu á mann
- Ferskar nektarínur
- Hlynsíróp
- Vanilluís
Karamellusósa
- 120 g Dumle-karamellur
- 1 dl rjómi
Haframulingur
- 1½ dl hafraflögur
- ½ dl kókosmjöl
- ½ dl hveiti
- ½ dl sykur
- 80 g smjör við stofuhita
Aðferð:
- Byrjið á því að útbúa haframulning. Skerið smjörið í litla bita og blandið öllu saman með höndunum. Dreifið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 12-15 mínútur við 190°C eða þar til blandan verður gyllt og stökk. Það þarf að hræra í blöndunni nokkrum sinnum á meðan hún er að bakast en hún á það til að brenna og það þarf að fylgjast vel með.
- Því næst er sósan útbúin. Bræðið Dumle-karamellurnar og rjóma í potti við vægan hita. Bætið aðeins mjólk saman við ef þið viljið hafa sósuna þynnri.
- Skerið nektarínurnar til helminga og takið steininn úr. Penslið þær með hlynsírópi ca 1 tsk. á hvern helming.
- Setjið nektarínurnar með skornu hliðina niður á grillið í 4-5 mínútur, snúið svo við og grillið áfram í 2-3 mínútur.
- Berið fram með vanilluís, karamellusósunni og haframulningnum. Njótið vel!
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir