Tímamótatrix! Það er nákvæmlega svona sem þú átt að þrífa baðkarið til að ná því tandurhreinu. Þessi aðferð markar tímamót í þrifaðferðum okkar til þessa – því hún djúphreinsar baðkarið í orðsins fyllstu merkingu.
Svona er best að þrífa baðkarið
- Byrjaðu á því að rennbleyta handklæði í ediki og leggðu þau því næst yfir blöndunartækin (vefðu þeim utan um).
- Helltu natroni ofan í niðurfallið.
- Helltu því næst ediki í niðurfallið.
- Stráðu natroni yfir baðkarið.
- Skvettu uppþvottalegi yfir baðkarið og skrúbbaðu með mjúkum svampi.
- Skolaðu vel og njóttu!