Hér er uppskrift sem krakkarnir munu elska – og fullorðnir alveg klárlega líka. Í raun allir sem elska Oreo og ís! Við kynnum auðveldustu útgáfu af heimagerðum íspinna sem slær í gegn. Það var Instagrammarinn @yackikuka sem birti uppskriftina, en hún er með yfir 1,5 milljón fylgjenda. Eina sem þú þarft, eru Oreo kexpakkar, mjólk og íspinnastangir.
Fyrsta skrefið er að mylja kexkökurnar í pakkningunum.
Mbl.is/Instagram_@yackikuka
Því næst er að raða pökkunum í ílát til að þeir standi stöðugir - og hellið síðan mjólk ofan í pakkana.
Mbl.is/Instagram_@yackikuka
Stingið íspinnaprikum ofan í og setjið inn í frysti.
Mbl.is/Instagram_@yackikuka
Hinn fullkomni Oreo ís á pinna!
Mbl.is/Instagram_@yackikuka