Sjúklega góð sítrónu og bláberjakaka

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

Hér er dásamleg kaka sem kemur úr smiðju Guðrúnar Ýrar á Döðlur & smjör.

„Nú fer að líða að lokum sumarsins og hægt er að næla sér í dásamleg bláber út í móa. Það er reyndar hægt að svindla með þessa köku þar sem við höfum orðið aðgengi að svo góðum bláberjum nánast allt árið um kring,“ segir Guðrún.

„Hún er þétt í sér en á sama tíma svo fersk og góð. Samblanda af sítrónu, ylliblómum og bláberjum – rámar meira að segja í að konungleg brúðkaupsterta Harry & Megan hafi verið eitthvað á þessa vegu. En ylliblómaþykknið er svo gott en því kynntist ég þegar ég bjó í Svíþjóð. Hylleblomst – svo frískandi og öðruvísi saft.“

Sítrónu- & bláberjakaka

  • 300 g sykur
  • börkur af einni sítrónu
  • 3 egg
  • 3 tsk. vanilludropar
  • 3 msk. ylliblómaþykkni (fæst í Ikea, en má sleppa)
  • 270 g hveiti
  • 2 tsk. lyftiduft
  • ½ tsk. salt
  • 230 g smjör, bráðið
  • 1 dós sýrður rjómi (180 g)
  • 200 g bláber

Aðferð:

  1. Stillið ofn á 175°C. Vigtið sykur og setjið í hrærivélarskál, rífið börkinn af sítrónunni ofan í sykurinn og blandið létt saman með hendinni. Bætið eggjunum, vanilludropum og ylliblómaþykkni saman við og hrærið vel í 3-5 mín. – þangað til að áferðin er létt og ljós.
  2. Vigtið hveiti og blandið saman við ásamt lyftidufti og salti, setjið vélina af stað á lágri stillingu. Smjörið er brætt og sett út í ásamt sýrða rjómanum. Hrærið saman þangað til að hráefnin eru samlaga en ekki lengur.
  3. Takið sleikju og skafið með fram botninum á hrærivélarskálinni til að vera viss um að allt sé blandað saman. Takið síðan bláberin og hrærið létt saman við deigið með sleikju.
  4. Takið form í stærð 20-25 cm og spreyið að innan með Pam-spreyi, hellið deiginu í formið og inn í ofn í 40-50 mín. Ef kakan fer að dökkna um of áður en hún er tilbúin er gott að setja álpappír yfir hana. Leyfið kökunni að kólna.

Krem

  • 300 ml rjómi
  • 100 g mascarpone-ostur
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 2 msk. flórsykur

Takið fram tvær skálar, léttþeytið rjóma í annarri og ost, vanilludropa og flórsykur í hinni. Blandið rjómanum saman við ostablönduna í tveimur skömmtum og hrærið vel saman.

Samsetning

Takið kökuna og setjið á disk, kremið er allt sett ofan á kökuna og dreift úr því. Gott er að setja fleiri bláber ofan á kremið, sem gefur kökunni ferskleika á móti bökuðu berjunum, og sáldra síðan flórsykri yfir í lokin.

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert