Haustið færir okkur alveg nýtt tímabil, þegar litirnir í náttúrunni breytast og sama á við um vinsælu og fjölnota skálarnar frá Rosti sem finnast nú í splúnkunýjum haustlitum.
Þessi árstími einkennist af rauðum, gylltum og grænum litum sem sjást í nýju litavali í Margrethe-skálunum. Litirnir í skálunum kallast þó hummus, karrí og gulrót – ásamt ólífu. Hér sameinast litadýrð náttúrunnar í nútímalegri og djarfri fagurfræði, þar sem framleiðslugæðin breytast þó ekkert. En skálarnar þykja með þeim betri í öll þau eldhúsverkefni þar sem skálar koma til sögu. Skálunum fylgir einnig lok svo auðvelt er að geyma mat í þeim, þar sem hann helst ljúffengur, ferskur og stökkur.
Þessar klassísku skálar innihalda átta stærðir, allt frá 0,15 til 3 lítra. Og eru í það háum gæðaflokki að settið kemur með fimm ára ábyrgð, rétt eins og aðrar vörur sem þeir framleiða.