Hvað er uppáhaldshráefnið þitt á hamborgara? Ef það er egg og paprika, þá er þetta hér fyrir þig.
Þetta æðislega trix dugar ekki bara á hamborgarann þinn, því það hentar einnig vel í brönsinn, á samlokuna, sem morgunmatur – eða í raun við öll þau tilefni þar sem þig langar í egg og papriku.
- Hér er paprikan skorin í sneiðar og henni er raðað á heita pönnuna.
- Einu eggi er slegið ofan í hverja paprikusneið og látið bakast á pönnunni. Munið að krydda yfir eggið ef vill.
- Eggja-paprikan er tekin af pönnunni og sett á hamborgarann eða beint á diskinn.
- Ekki bara ljúffengt, heldur líka gómsætt fyrir augað.