Þegar bera skal fram „heiðursgestinn“ í veislunni, kökuna sjálfa – þá skiptir kökudiskurinn alls ekki minna máli. Hér eru sex flottir kökudiskar sem við fundum á búðarrölti um netheimana hérlendis.
Kökudiskur, kertadiskur eða hvað sem þér dettur í hug að setja á þennan æðislega disk, það mun virka vel. Fæst HÉR.
Þriggja hæða kökudiskur frá Royal Copenhagen. Þeir verða vart klassískari en þessi - fæst HÉR.
Tertudiskarnir frá Mosser Glass eru með kanti til að halda mylsnum og sósu á sínum stað á disknum. Þar að auki eru diskarnir háir og koma því á ákveðinni vídd á veisluborðið. Fáanlegur HÉR.
Hvítur og stílhreinn kökudiskur á háum fæti – minimalískur en smart á sama tíma. Fæst HÉR.
Glæstur diskur frá Georg Jensen, sem upphaflega var hannaður af Sigvard Bernadotte. Diskurinn er fáanlegur HÉR.
Hvítur marmara kökudiskur með karakter, sem stelur án efa athyglinni á veisluborðinu. Diskurinn er hannaður af Louise Roe og fæst HÉR.