Hér er dásamlega góður fiskréttur úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is sem ætti að kæta matgæðinga sem þrá eitthvað dásamlega bragðgott en létt í maga í kvöldverð.
„Ég er allt of löt að vera með fisk í matinn sem ég skil síðan aldrei þegar ég geri eitthvað undur ljúffengt eins og þessa uppskrift hér! Ég þarf klárlega að herða mig í fiskréttunum og reyna að hafa fisk að minnsta kosti einu sinni í viku,“ segir Berglind og við tökum heilshugar undir það.
Þorskhnakkar með stökkum parmesanhjúp
Fyrir um 4 manns
Fiskur
- Um 800 g þorskhnakkar
- 60 g pankorasp
- 50 g rifinn parmesan
- 60 g smjör við stofuhita
- 1 tsk. tabasco original sauce
- 1 msk. söxuð steinselja
- 3 rifin hvítlauksrif
- safi úr ½ sítrónu
- salt, pipar, hvítlauksduft
- Skolið og þerrið fiskinn. Smyrjið eldfast mót og raðið þorskhnökkunum í mótið (ég skar hvert flak niður í tvo bita). Kryddið vel með salti og pipar.
- Blandið raspi, parmesan, smjöri, tabasco, steinselju, hvítlauk og sítrónusafa saman í skál. Best er að hnoða saman í höndunum og krydda til með salti, pipar og hvítlauksdufti. Ég notaði um 1 tsk. af hvítlauksdufti og salti og eins og ½ tsk. af pipar.
- Setjið vel af parmesanblöndu yfir hvert fiskstykki.
- Bakið við 200°C í 12-15 mínútur (eftir þykkt fiskbitanna).
Kartöflur
- Um 600 g smælki
- ólífuolía
- salt, pipar, hvítlauksduft
- Hitið ofninn í 200°C.
- Skerið kartöflurnar til helminga og veltið upp úr 2-3 msk. af ólífuolíu.
- Kryddið með um 1.tsk af salti og hvítlauksdufti og um ½ tsk. af pipar.
- Bakið í um 30 mínútur eða þar til kartöflurnar mýkjast.
Smjörsteiktur aspas
- 1 ferskt aspasbúnt
- 60 g smjör
- salt, pipar, hvítlauksduft eftir smekk
- Bræðið smjörið við meðalháan hita og veltið aspasnum upp úr því og snúið reglulega.
- Kryddið eftir smekk og leyfið að malla þar til aspasinn mýkist.
Köld tabascosósa
- 1 dós sýrður rjómi (180 g)
- safi af ½ sítrónu
- 1 tsk. salt
- 1 tsk. paprikuduft
- 1 tsk. tabasco original sauce
- pískið allt saman í skál og geymið í kæli fram að notkun.
Þá er gott að byrja á því að útbúa hjúpinn á fiskinn og leggja til hliðar á meðan þið undirbúið kartöflurnar og setjið þær í ofninn.
Þegar kartöflurnar eru komnar í ofninn passar vel að útbúa köldu sósuna, setja hjúpinn á fiskinn og koma aspasnum í eldun. Þegar kartöflurnar hafa verið í ofninum í um 15 mínútur má bæta fisknum við og baka hvort tveggja áfram í um 15 mínútur.
Á meðan mallar aspasinn og gott er að leggja á borðið og ganga frá því sem notað var við eldamennskuna.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir