Í minni fjölskyldu er einn réttur í sérlegu uppáhaldi hjá krökkunum og það er ítölsk grýta eða einhvers konar útgáfa af henni. Hér gefur að líta geggjaða útgáfu úr smiðju Berglindar Hreiðars á Gotteri.is.
Ítölsk grýta með hakkbollum
Fyrir um 6 manns
Ítölsk grýta
- Um 1 kg tilbúnar hakkbollur
- 1.500 ml vatn
- 2 pokar ítölsk grýta frá TORO
- 1 box piccolotómatar
- fersk basilika
- salt og pipar
- rifinn parmesanostur
- ólífuolía til steikingar
- Steikið hakkbollurnar upp úr ólífuolíu og brúnið vel allar hliðar.
- Takið af pönnunni, hellið vatninu á hana og hrærið grýtunni saman við og leyfið að malla í um 5 mínútur.
- Bætið þá bollunum aftur á pönnuna ásamt tómötum og leyfið að malla saman þar til spagettíið er soðið (5-10 mínútur í viðbót).
- Berið fram með ferskri basilíku, rifnum parmesanosti og hvítlauksbrauði.
Hvítlauksbrauð
Um 20 sneiðar
- 1 fínt snittubrauð
- 150 g smjör við stofuhita
- 3 rifin hvítlauksrif
- 1 msk. óreganókrydd
- ½ tsk. salt
- ½ tsk. pipar
- Skerið snittubrauðið í sneiðar.
- Stappið smjör, hvítlauk og krydd saman í skál og smyrjið vel af smjörblöndu yfir hverja brauðsneið.
- Bakið við 180°C í 7-8 mínútur.
- Gott er að gera brauðið tilbúið áður en hafist er handa við að steikja bollurnar til þess að hægt sé að skella því í ofninn þegar grýtan mallar síðustu mínúturnar.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram og Facebook. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir