Það er engin önnur en Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessum eftirrétti sem hún segir að sé algjörlega guðdómlegur!
Súkkulaðisæla
- 140 g smjör
- 140 g Green & Blacks 70% súkkulaði
- 2 egg
- 3 eggjarauður
- 140 g flórsykur
- 40 g bökunarkakó
- 60 g hveiti
- Häagen-Dazs Dulce De Leche ís
- Karamelluíssósa
- Kirsuber
Aðferð:
- Hitið ofninn í 220°C.
- Bræðið smjör og súkkulaði í vatnsbaði og leyfið hitanum að rjúka úr í nokkrar mínútur.
- Þeytið saman egg og eggjarauður þar til létt og ljóst og bætið þá flórsykrinum saman við í nokkrum skömmtum.
- Að lokum má sigta hveiti og bökunarkakó í blönduna og vefja varlega saman.
- Smyrjið souffle form vel með smjöri, fyllið um 2/3 af forminu og bakið í 10-12 mínútur. Dugar í 6-8 souffle form (eftir stærð).
- Leyfið aðeins að standa og setjið síðan væna skeið af ís, karamellusósu og kirsuber á hverja köku.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir