Það er fátt sem toppar góðan sunnudagsmat og þar er lambalæri efst á blaði enda allsendis frábær matur. Ljóst er að lambalærið lifir góðu lífi því lesendur matarvefsins sækja mikið í slíkar uppskriftir og hér erum við með frábæra uppskrift frá Berglindi Hreiðars á Gotteri.is sem býður upp á rauðvínssósu og kartöflugratín með – ásamt gljáðum gulrótum.
Lambalæri með kartöflugratíni og rauðvínssósu
Fyrir 4-6
Lambalæri uppskrift
- Íslenskt lambalæri, um 2 kg
- 2 hvítlauksgeirar
- ólífuolía
- lambakjötskrydd
- 1 gulrót
- ½ laukur
- 400 ml vatn
Aðferð:
- Hitið ofninn í 170°C.
- Þerrið lambalærið og berið á það smá ólífuolíu.
- Skerið aðeins í lærið á nokkrum stöðum, takið hvítlauksrifin í 2-3 hluta og stingið ofan í raufarnar.
- Kryddið vel með lambakjötskryddi allan hringinn.
- Setjið í steikarpott ásamt gulrót og lauk (fyrir betra soð) ásamt vatninu.
- Setjið lokið á og inn í ofn í um 1,5 klukkustundir eða þar til kjarnhiti er á bilinu 60-70°C eftir því hversu vel þið viljið hafa það steikt.
Kartöflugratín uppskrift
- Um 1 kg kartöflur
- 1 rauðlaukur
- 3 hvítlauksrif
- 50 g smjör
- 500 ml rjómi
- 1 msk. timían
- salt og pipar
- rifinn ostur (t.d. Tindur)
Aðferð:
- Hitið ofninn í 190°C.
- Flysjið kartöflurnar og skerið þær síðan í þunnar sneiðar (1/2 cm eða þynnri), leggið til hliðar.
- Skerið rauðlaukinn í þunnar sneiðar og rífið niður hvítlaukinn. Steikið upp úr smjöri við meðalhita þar til mýkist, kryddið til með salti og pipar. Takið af hellunni og geymið.
- Raðið síðan saman í eldfast mót: einu lagi af kartöflum, smá af laukblöndu, smá timían, salt og pipar … endurtakið síðan þar til allar kartöflur eru búnar.
- Þá má hella rjómanum yfir allt saman og rífa vel af osti yfir allt að lokum.
- Bakið í ofninum undir álpappír í um klukkustund, takið álpappírinn þá af og leyfið ostinum aðeins að gyllast, í um 10 mínútur í viðbót.
Ofnbakaðar gulrætur
- 1 poki gulrætur (um 500 g)
- 2 msk. ólífuolía
- 1 msk. hlynsíróp
- 1 tsk. timían
- 1 tsk. salt
- ½ tsk. pipar
Aðferð:
- Skolið gulræturnar (flysjið ef þess þarf).
- Setjið gulrætur ásamt öðrum hráefnum saman í eldfast mót, veltið öllu saman og bakið í um klukkustund eða þar til gulræturnar eru mjúkar í gegn.
Rauðvínssósa uppskrift
- 4 skalottlaukar
- 2 hvítlauksrif
- 30 g smjör
- 100 ml balsamedik
- 350 ml Muga Reserva-rauðvín
- 200 ml kjötsoð (frá lambalærinu)
- 300 ml vatn
- 1 lárviðarlauf
- 1 msk. timían
- salt og pipar
- 1-2 msk. Oscar fljótandi kjötkraftur
- 3-4 msk. dökkur sósujafnari (Maizena)
Aðferð:
- Saxið skalottlaukinn smátt og rífið niður hvítlauksrifin.
- Steikið báðar tegundir af lauk upp úr smjöri við meðalhita, kryddið til með salti og pipar.
- Hellið næst balsamediki yfir laukinn og leyfið því að sjóða niður (gufa upp).
- Því næst má hella rauðvíninu yfir allt og leyfa því sömuleiðis að sjóða aðeins niður og malla í nokkrar mínútur.
- Bætið þá kjötsoði (frá lambalærinu) í pottinn ásamt vatni, lárviðarlaufi og timían, leyfið að malla.
- Smakkið til með krafti og kryddi og þykkið með sósujafnara.
- Sósan má malla eins lengi og þarf, hún verður bara betri fyrir vikið.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir