Það er fátt betra en góð súpa – sérstaklega þegar napurt vetrarveðrið er að leika okkur grátt. Þessi súpa er algjört sælgæti og er gómsæt bæði sem forréttur og sem aðalréttur. Sé hún höfð í aðalrétt er snjallt að bjóða upp á gott brauð með og jafnvel smá salat.
Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld.
Sveppasúpa
Fyrir 4-6 manns
- 500 g blandaðir sveppir
- ½ laukur
- 2 hvítlauksrif
- 50 g smjör
- 1 líter vatn
- 800 ml rjómi
- 2 pakkar TORO skógarsveppasúpa
- 1 msk. ferskt timían
- 2 msk. nautakraftur
- Salt og pipar eftir smekk
Aðferð:
- Skerið sveppina niður í sneiðar (ég var með portobello, kastaníu og venjulega).
- Saxið laukinn smátt og rífið niður hvítlaukinn.
- Steikið lauk og hvítlauk stutta stund upp úr smjöri, bætið síðan sveppunum saman við og steikið áfram þar til allur vökvi gufar upp. Kryddið til með salti og pipar.
- Hellið vatni og rjóma í pottinn og pískið súpuduftið saman við ásamt timían.
- Kryddið til með nautakrafti, salti og pipar og leyfið að malla stutta stund.
- Gott er að bera súpuna fram með nýbökuðu snittubrauði.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir