Eins og endranær getum við treyst því að Albert Eiríks færi okkur fregnir af því sem er að trenda í eldhúsum landsmanna.
Í þetta sinn var það Herdís frænka hans sem bauð í kaffi þar sem boðið var upp á heitan brauðrétt sem kallast Svangi Mexíkaninn. Albert var sérlega hrifinn af uppskriftinni og sagði hana alveg meiriháttar.
Svangi Mexíkaninn
- 1 stórt samlokubrauð
- ½ lítri matreiðslurjómi
- ½ grænmetis-teningur
- 1 mexikó ostur
- ½ piparostur
- Ca 3 msk rjómaostur m grillaðri papriku og chili
- Ca 2 msk rjómaostur
- 2 dl nýmjólk
- 100 g pepperoni
- 4 skinkusneiðar
- 1 rauð paprika
- Ca 10 cm púrrulaukur
- 3 stórir sveppir
- Rifinn ostur
- Appelsínugult doritos
Aðferð:
- Uppskrift miðast við 1 stórt samlokubrauð – (passar í sirka 2 stór eldföst mót.)
- Mér finnst best að útbúa réttinn kvöldið áður en á að borða hann.
- Piparostur og mexikó ostur sneiddir niður (eða rifnir)
- Matreiðslurjómi hitaður ásamt grænmetisteningi. Ostum bætt útí og hrært í þar til er orðið mjúkt. – mjólk bætt útí til að þynna (sirka 2-3 dl)
- Pepperoni, skinka sneitt niður. Paprika, púrrulaukur og sveppir sneitt í litla bita og geymt til hliðar.
- Grænmeti steikt upp úr smá smjöri þar til mjúkt, pepperoni og skinku bætt við og steikt í smá stund í viðbót. Öllu bætt út í osta soppuna.
- Heilt samlokubrauð sneitt í teninga og sett í 2-3 eldföst mót.
- Soppunni skipt jafnt á milli forma og hrært aðeins í með sleikju til að blandist vel.
- Rifinn ostur settur yfir og doritos mulið ofaná.
- Bakað í ofni við 180°C í sirka 20 mínútur eða þar til ostur er orðinn gullinn.
Albert, Baldur Hrafn, Bergþór, Kjartan og Herdís Hulda. Heimasætan Sólveig tók myndina.
Ljósmynd/Sólveg