Það er ekki seinna vænna en að fara kynda upp í jólunum, segja einhverjir. Hér er uppskrift að æðislegum jólailmi.
Mbl.is/TikTok_carolina.mccauley
Margir landsmenn eru að detta í jólagírinn, á meðan aðrir sitja á sér þar til í desember. Hér er yndislegur jólailmur sem þú getur búið til úr nokkrum hráefnum heima.
Uppskrift að jólaangan:
- Settu vatn í pott.
- Skerðu sítrusávöxt í sneiðar, t.d. appelsínu, og settu í pottinn.
- Helltu einum bolla af trönuberjum út í pottinn.
- Settu nokkrar kanilstangir saman við.
- Og að lokum, settu nokkrar rósmaríngreinar út í vatnið.
- Hitaðu vatnið að suðu og leyfðu því að malla í smá tíma þar til húsið ilmar eins og Þorláksmessukvöld.