Tómatsósutrixið sem er hálfgerð lygasaga

Prófaðu næst að maka tómatsósu yfir skítugan vaskinn og skolaðu …
Prófaðu næst að maka tómatsósu yfir skítugan vaskinn og skolaðu svo burt. mbl.is/tiktok_ramin2025

Hver hefði trúað því að tómatsósa gæti haft svona mikil áhrif! 

Hér er á ferðinni húsráð sem okkur óraði ekki fyrir að myndi rata inn á matarvefinn, því þetta höfum við aldrei séð né heyrt um - en það snýr að því að þrífa eldhúsvaskinn. Þú byrjar á því að maka tómatsósu yfir allan vaskinn og þá meinum við vel og vandlega og nóg af sósu. Síðan leyfirðu sósunni að malla á óhreinindunum í 15 mínútur áður en þú skolar hana burt, og vaskurinn verður skínandi hreinn á ný!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert