Hér erum við með heimsklassa kjúklingasalat sem allir ættu að elska – þá ekki síst meistari Gordon Ramsay sem er þekktur fyrir að elska góðan mat.
Hér er notað majónes – en þó ekki hefðbundið heldur Lighter than light majónesið frá Hellmann‘s sem inniheldur einungis brot af hefðbundnum majónes hitaeiningum og opnar nýjar víddir fyrir majóneselskandi gourmet nagga.
Það er meistari Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn að þessari snilld sem svíkur engan.
Kjúklingasalat með trönuberjum
Fyrir um fjóra
- Romaine salat eða annað stökkt salat
- Um 800 g kjúklingalundir (+ olía og krydd)
- 200 g vínber
- 1 rauðlaukur
- 60 g ristaðar möndluflögur
- 40 g þurrkuð trönuber
- 200 g Hellmann‘s Lighter than light majónes
- 3 msk. Dijon sinnep
- 1 msk. sítrónusafi
- Salt og pipar eftir smekk
- Parmesanostur til að rífa yfir
Aðferð:
- Steikið kjúklingalundirnar upp úr ólífuolíu og kryddið eftir smekk. Skerið þær næst niður í litla bita.
- Skerið vínber og rauðlauk smátt niður.
- Setjið kjúklingabita, vínber, rauðlauk, möndluflögur og trönuber saman í stóra skál og hrærið næst í sósuna í annarri skál.
- Pískið saman majónes, sinnep og sítrónusafa og kryddið með salti og pipar eftir smekk, hellið yfir kjúklingablönduna og blandið saman við með sleikju.
- Raðið stökku salati í skál, setjið kjúklingasalatið ofan á salatblöðin og rífið parmesan ost yfir eftir smekk.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir