Espresso sem svalar súkkulaðiþörfinni

Jóladrykkurinn í ár er klárlega þessi útgáfa af espresso.
Jóladrykkurinn í ár er klárlega þessi útgáfa af espresso. Mbl.is/charmlife.com.mx

Það er fátt betra en súkkulaðimoli með góðum kaffidrykk – og enn betra ef drykkurinn inniheldur súkkulaði. Hér sjáum við uppskrift að espresso sem svalar súkkulaðiþörfinni.

Espresso sem svalar súkkulaðiþörfinni

  • 50 ml súkkulaði að eigin vali (t.d. tvær plötur af After Eight)
  • 50 ml tvöfaldur espresso
  • 50 ml vodka

Aðferð:

  1. Bræðið súkkulaðið yfir vatnsbaði og setjið örlítið vatn saman við til að þynna það.
  2. Setjið öll hráefnin í kokteilhristara, ásamt handfylli af klaka.
  3. Hristið vel þar til freyðir. Sigtið drykkinn ofan í kælt martiniglas.
  4. Skreytið með súkkulaði að eigin vali.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert