Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem biðlað er til stjórnvalda að viðurkenna mikilvægi greinarinnar og þá alvarlegu stöðu sem hún stendur frammi fyrir.
Yfirlýsing frá SVEIT (samtök fyrirtækja á veitingamarkaði) vegna hertra aðgerða ríkisstjórnar:
Samtökin lýsa yfir gríðarlegum vonbrigðum eftir að tilkynnt var, eftir ríkisstjórnarfund í dag, að enn hertari aðgerðir taki gildi 23. desember og enn og aftur án þess að tilkynnt sé um nokkur úrræði fyrir greinina samhliða skerðingu á starfsemi.
Krefst SVEIT þess að viðurkennt verði mikilvægi greinarinnar með því að takast á við þann alvarlega vanda sem blasir við með beinum, hnitmiðuðum og sértækum úrræðum í þeim tilgangi að bæta það tjón sem hertar sóttvarnaraðgerðir hafa haft á rekstrarumhverfi, samkeppnishæfni og aðdráttarafl veitingageirans.
Undanfarin ár hafa verið lagðar þungar hömlur á starfsemi greinarinnar sem hafa lýst sér í miklu brottfalli og óvissu.
Vonbrigði SVEIT vegna ákvörðunar ríkisstjórnarinnar varðandi hertar aðgerðir þann 21.desember lúta fyrst og fremst að:
Ástandið á veitingamarkaði er gríðarlega alvarlegt, þar sem sóttvarnaraðgerðir hafa frá degi eitt, haft bein áhrif á starfsemi þar sem rauði þráður þeirra er að takmarka að fólk komi saman þar sem vínveitingar eru seldar.
Nú þegar við siglum inn í þriðja ártal Covid-19 er varla hægt að tala um fordæmalausa tíma. Er það ósk SVEIT að viðeigandi aðgerðaáætlun verið hönnuð með það fyrir augum að rekstraraðilar öðlist öryggi og stöðuleika þegar gripið er til sóttvarnaraðgerða. Þar sem viðeigandi úrræði verða í boði strax og gripið er til aðgerða.