Hver elskar ekki súkkulaði og vín? Og þegar tveir stórframleiðendur mætast og framleiða vöru sem enginn getur staðist – þá gleðjumst við.
Súkkulaðikexið Oreo og vínframleiðandinn Barefoot Wine, kynntu á dögunum nýja afurð sem við rýnum nánar í – enda sjaldséð að sjá súkkulaðikex eiga hlutdeild í rauðvíni. Hér er þó ekkert súkkulaðibragð á ferðinni, en það má þó finna glögglega keim úr kexinu góða – súkkulaði, kex, krem, smáveigis af eik ásamt brómberjum og dökkum kirsuberjum. Blanda sem við hér á matarvefnum myndum leggja það á okkur að smakka ef það stæði til boða.