Þetta verður þú að prófa á eldhúsvaskinn

Er eldhúsvaskurinn upp á sitt besta á þínu heimili?
Er eldhúsvaskurinn upp á sitt besta á þínu heimili? mbl.is/

Við þefum stöðugt uppi ný húsráð og hugmyndir um hvernig best sé að létta okkur lífið í eldhúsinu – og þetta er eitt af þeim sem þú verður að prófa á eldhúsvaskinn.

Það er eitt að vera búinn að þrífa eldhúsvaskinn í bak og fyrir – eða svo vel að við tímum varla að láta vatnið renna niður kranann til að hann missi ekki „sjænið“. En til að halda vaskinum lengur glansandi hreinum lengur mun þetta sniðuga húsráð fleyta þér lengra áfram. Eftir að hafa þrifið vaskinn skaltu bera á hann barnaolíu með hreinum klút og vaskurinn mun glansa meira og lengur en nokkru sinni fyrr.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert