Margur landinn hefur orðið sér úti um eitt vinsælasta heimilistækið þessi dægrin. Við erum að sjálfsögðu að tala um Air Fryer eða loftsteikingartæki. En hér er besta leiðin til að þrífa græjuna.
Svona þrífur þú Air Fryer
- Stráðu vel af matarsóda yfir botninn á körfunni.
- Sprautaðu uppþvottalegi yfir matarsódann og helltu sjóðandi heitu vatni yfir, nánast alveg upp að brún. Leyfðu þessu aðeins að standa og taka sig.
- Skrúbbaðu því næst og skolaðu körfuna og þurrkaðu vel á eftir.
- Þrífðu utan af græjunni með edikblöndu – helmingi af ediki og helmingi af vatni.
Air Fryer hefur eflaust leynst undir trénu hjá nokkuð mörgum þessi jólin.
mbl.is/