Stóri dagurinn nálgast! Dagurinn sem flytur okkur yfir á nýtt ár – full af tilhlökkun, gleði og í von um spennandi ævintýri. Og á gamlárskvöld er gaman að skreyta allt hátt og lágt með glimmerbombum og óþarfa skrauti sem tekur restina af árinu að þrífa upp af gólfinu (eða svo gott sem). Hér fyrir neðan eru nokkrar hugmyndir hvernig megi skreyta og gleðjast á glitrandi máta á gamlárskvöld.