Hér erum við með salat á heimsmælikvarða. Flóknara er það nú ekki.
Það er Eva Laufey sem á heiðurinn af því og hafi hún þakkir okkar fyrir það.
Salat með hráskinku og mozzarellaperlum
Einn skammtur
- 150 g klettasalat
- 180 g mozzarellaperlur (1 dós)
- 300 g hráskinka
- 1 askja kirsuberjatómatar
- 10 jarðarber
- ristaðar furuhnetur
- balsamgljái
Aðferð
- Skolið og þerrið klettasalatið, hellið smá ólífuolíu yfir og kryddið til með salti og pipar.
- Leggið klettasalatið á fallegan disk, dreifið mozzarellaperlunum ofan á salatið. Setjið hráskinkuna yfir salatið.
- Skerið jarðarber og tómata smátt og dreifið yfir hráskinkuna.
- Ristið furuhnetur og dreifið yfir í lokin. Gott er að bera salatið fram með balsamgljáa og ristuðu hvítlauksbrauði.