Þessi kjúklingaréttur kallast því frumlega nafni „Viltu giftast mér?“ og er að sögn Berglindar Guðmunds á GRGS.is bæði einfaldur og ótrúlega bragðgóður!
Við treystum því og skellum í eitt bónorð um helgina - eða að minnsta kosti kjúklingabónorð.
Viltu giftast mér?
- 1-2 msk. ólífuolía
- 1 kg kjúklingalæri
- sjávarsalt og svartur pipar
Sósa:
- 2 hvítlauksrif, pressuð
- 1 msk. ferskt timían
- 1 tsk. muldar chilíflögur
- 180 ml kjúklingasoð
- 120 ml 36% rjómi frá Örnu
- 30 g sólþurrkaðir tómatar, saxaðir
- 1/2 dl rifinn parmesan
- Fersk basilíka
Leiðbeiningar
- Þerrið kjúklinginn með eldhúsbréfi og kryddið með salti og pipar.
- Hitið olíu á pönnu og steikið kjúklinginn í 4-5 mínútur á hvorri hlið. Takið kjúklinginn til hliðar og hellið helming vökvans af pönnunni.
- Steikið hvítlauk, timían og muldar chilíflögur í 1 mínútu.
- Bæði kjúklingasoði, rjóma, sólþurrkuðum tómötum og parmesan og látið malla. Bætið kjúklingnum út á pönnuna fitan snýr upp..
- Eldið í 180°C heitum ofni í 20 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn.
- Stráið saxaðri basilíku yfir réttinn og berið fram.