Lucky Charms nú fáanlegt sem pönnukökumix

Sætasta pönnukökumix síðari ára!
Sætasta pönnukökumix síðari ára! Mbl.is/INSTAGRAM @SNA_CKFOODIE

Litríkasta morgunkorn allra tíma er nú að finna í pönnukökublöndu sem eflaust margir gleðjast yfir – þá sérstaklega yngri kynslóðin.

Pönnukökublandan er innblásin af morgunkorninu Lucky Charms og inniheldur nánast allt sem þú þarft til að búa til töfrandi bita. Í kassanum má finna pönnukökumix og litlu sykurpúðana sem við getum ekki staðist. Við erum nokkuð sannfærð um að enginn muni sleppa pönnukökum í morgunmat eftir að hafa smakkað á þessum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert