Ef þú varst að spá í hvað þú ættir að hafa í kvöldmatinn þá þarftu ekki að velta því lengur fyrir þér.
Hér er skotheld pastauppskrift úr smiðju Lindu Ben sem getur ekki klikkað.
Rjómalagað pestó pasta með sólþurrkuðum tómötum og spínati
- 200 g Barilla heilhveiti spagettí
- 1 laukur
- 2 hvítlauksgeirar
- 250 g sveppir
- 2-3 msk ólífu olía
- 190 g rautt pestó
- 250 ml rjómi
- 200 g sólþurrkaðir tómatar
- 100 g spínat
- Salt og pipar
- 2 tsk oreganó
- ½ tsk þurrkaðar chillí flögur
- Parmesan ostur (mjög gott, en má sleppa)
- Má bæta við skinku eða kjúkling ef vill
Aðferð:
- Sjóðið spagettíið samkvæmt leiðbeiningum.
- Skerið laukinn, hvítlaukinn og sveppina niður og steikið upp úr ólífu olíu. (ef þið viljið bæta út í skinku eða forelduðum kjúkling út í réttinn, gerið það þá hér, skerið í hæfilega stóra bita og steikið með).
- Bætið pestóinu út á pönnuna ásamt rjóma og blandið saman.
- Skerið sólþurrkuðu tómtana gróft niður og bætið út á pönnuna ásamt spínatinu, blandið saman.
- Kryddið til með salti, pipar, oreganó, chillí og leyfið að malla í u.þ.b. 5 mín.
- Þegar spagettíið er orðið soðið, hellið vatninu af og bætið spagettíinu út á pönnuna, hrærið saman.
- Berið fram með parmesan osti.